Vefverslun Skíðagöngufélagsins Ullar


Hjólaskíðamót 2025

Hjólaskíðamót Ullar fer fram sunnudaginn 21. september næstkomandi klukkan 10.00. Mótið verður haldið í Fossvogsdalnum með starti og marki rétt vestan við Víkingsheimilið. Í boði verða fleiri en ein vegalengd og hentar brautin öllum, hvort sem er byrjendum eða lengra komnum. Eins og undanfarin ár verða glæsileg útdráttarverðlaun í boði.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum og vegalengdum:
- 9 ára og yngri (fædd 2016 og yngri) 2 km, 1xminni hringur
- 10 - 12 ára (fædd 2013-2015) 4 km, 2xminni hringur
- 12 ára og yngri mega vera á hvort sem er línuskautum eða hjólaskíðum og er frjáls aðferð leyfileg
- 13 - 15 ára stúlkur og piltar (fædd 2010-2012) 7 km, 1xstærri hringur + 1xminni hringur. Hefðbundin aðferð.
- 16 ára og eldri konur og karlar (fædd 2009 og eldri) 10 km eða 5km 10km fara 2xstærri hringur, 5 km fara hann einu sinni. Hefðbundin aðferð.

Brautarverðir verða á helstu stöðum en biðjum þátttakendur þó að vera búin að skoða kort og kynna sér brautina fyrir keppni.
Þegar að farið er tilbaka í stærri hringnum (til austurs) er beygt upp til hægri rétt við Fossvogsskóla.
Athugið að 13 ára og eldri mega einungis keppa á hjólaskíðum með stoppara (ekki á skautahjólaskíðum).
Hjálmaskylda er í keppninni.
Þátttökugjald:
15 ára og yngri fá frítt
16 ára og eldri borga 1.000kr

Skráning 17 ára og eldri fer fram á þessari síðu.
Skráningar 15 og yngri skulu berast á ullarpostur at gmail.com. Senda skal nafn, fæðingarár, félag. Þau sem hyggjast keppa á línuskautum (12 og yngri) taki það fram í póstinum.

Skráningarfrestur er laugardagurinn 20. september kl 20:00

Vefverslunar rekin af:
Skíðagöngufélagið Ullur
kt. 600707-0780
Sörlaskjóli 15
107 Reykjavík
ullarpostur@gmail.com


Veldu námskeið