Vefverslun Skíðagöngufélagsins Ullar


2019 Námskeið (6 skipti)

Farið verður í alla helstu þætti skíðagöngunnar eins og skíðatækni, klæðnað, smurningu og fleira. Æfingar/kennsla fyrir hópana verða á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:00 og einn laugardag kl. 10:30.

Hópur E: Kennt verður 11., 13., 16., 18. og 20. mars. Smurningskennsla, sem er hluti af námskeiðinu, verður þegar/ef veður verður vont einhvern daginn.

Verð: 12.000.- kr og aðild að Ulli er skilyrði.

Til að vera þátttakandi á 6 skipta námskeiðum Ullar þarf að vera skráður í félagið. Nánari upplýsingar um hvernig hægt er að skrá sig í félagið má finna hér.

Athugið, einungis er hægt að fá leigð skíði hjá félaginu ef æfingin fer fram í Bláfjöllum. Verð á skíðaleigu með námskeiði er 2.000 kr. skiptið (fullt verð 3.000 kr. )

Vakin er athygli á því að eins og á öðrum skíðasvæðum þarf að kaupa skíðakort sem gildir í brautirnar í Bláfjöllum en það er ekki innifalið í námskeiðum sem haldin eru á svæðinu.

Breytingar vegna veðurs verða tilkynntar í tölvupósti.

Smelltu hér til að skoða staðsetningu Ullarskálans í Bláfjöllum, þar sem námskeið og æfingarnar fara fram.

Vefverslunar rekin af:
Skíðagöngufélagið Ullur
kt. 600707-0780
Sörlaskjóli 15
107 Reykjavík
ullarpostur@gmail.com


Veldu námskeið